25 Febrúar 2013 12:00
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú tveggja manna sem frömdu rán í versluninni 10-11 í Þverbrekku í Kópvogi klukkan rúmlega ellefu sl. föstudagskvöld, en tilkynning um málið barst lögreglu kl. 23.17. Ræningjarnir, sem sjást á meðfylgjandi myndum, beittu starfsmann verslunarinnar ofbeldi og höfðu síðan á brott með sér einhverja fjármuni.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um mennina eru beðnir að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000. Upplýsingar má einnig senda í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is