12 Mars 2025 08:43

Í dag, miðvikudaginn 12. mars, má búast við umferðartöfum á Fjarðarhrauni í Hafnarfirði, á milli Hólshrauns og Hafnarfjarðarvegar, á milli kl. 10 -18. Þar eru fyrirhugaðar framkvæmdir sem Veitur og HS veitur vinna að, en unnið verður bæði vestan og austanmegin við Fjarðarhraun á þessum kafla.

Ökumenn eru vinsamlegast beðnir um að sýna tillitssemi og aka varlega.