19 Desember 2024 12:07
Nýverið voru erlend hjón handtekin á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins með 34 kg af kannabisefnum. Fíknefnin fundust við leit tollvarða í tveimur ferðatöskum er fólkið hafði meðferðis. Tilgangur ferðar virðist hafa verið sá eini að flytja fíkniefni til landsins og þiggja greiðslu fyrir.
Það sem af er þessu ári hefur lögreglan á Suðurnesjum haldlagt 158 kg af maríhúana, 21 kg af hassi, 35 kg af kókaíni, tæplega 19000 stk. af MDMA, um 2000 skammta af LSD og 7000 stk. af OxyContin. Flest málanna eiga uppruna sinn á landamærunum að tilstuðlan árvökulla tollvarða. Mikið og gott samstarf er á milli lögreglunnar á Suðurnesjum og tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli. Árið 2023 haldlagði lögreglan á Suðurnesjum 125 kg af maríhúana og 15.5 kg af hassi, en svipað magn af öðrum ólöglegum efnum.
Mismunandi aðferðum var beitt við innflutning haldlagðra fíkniefna, með það að markmiði að koma fíkniefnunum fram hjá tollvörðum og til dreifingar á götum úti. Sérstaða var með málum sem vörðuðu innflutning kókaíns en kókaínið var í flestum tilfellum flutt innvortis. Mesta magn sem einstaklingur flutti í líkama sínum á árinu 2024 voru 140 pakkningar sem reyndust innihalda 1.470 kg af kókaíni. Slík flutningsaðferð er lífshættuleg og var t.a.m. einn einstaklingur færður í bráðaaðgerð á Landspítala í Fossvogi þar sem pakkningar sem innihéldu fljótandi kókaín festust í meltingavegi viðkomandi. Vinsælt er að reyna að fela fíkniefni í matvælum og til að mynda var lagt hald á 34 kg af maríhúana sem falið var í pakkningum merktum asískri núðlusúpu.