28 Nóvember 2024 15:33
Kort fyrir þéttbýlisstaði á Austurlandi staðfest formlega með undirritun ráðherra í dag
Undanfarið ár hafa sérfræðingar Veðurstofu Íslands unnið með Almannavarnarnefnd Austurlands að því að uppfæra rýmingarkort vegna ofanflóðahættu fyrir þéttbýlin í Múlaþingi og Fjarðabyggð.
Um er að ræða rýmingarkort fyrir Seyðisfjörð, Neskaupstað, Eskifjörð, Fáskrúðsfjörð og Stöðvarfjörð. Voru hin nýju kort staðfest af Guðlaugi Þór Þórðarsyni umhverfis-orku- og loftlagsráðherra í dag, fimmtudaginn 28.nóvember, og taka nú gildi í stað eldri korta.
Nýir rýmingareitir miða við ofanflóðavarnir sem risið hafa frá því hættumat ofanflóða var gert ásamt öðrum þáttum sem draga úr hættu.
Ein mikilvægasta breytingin er sú að nú eru kortin sett fram á stafrænan hátt og verða aðgengileg á heimasíðu sveitarfélaganna Múlaþings og Fjarðabyggðar. Þar uppfærast allar breytingar jafnóðum, hvort heldur nýjar götur eru lagðar eða hús byggð. Þá munu kortin einfalda skipulag og vinnu viðbragðsaðila ef til rýminga kemur.
Kortin verða aðgengileg íbúum á heimasíðum sveitarfélaganna tveggja á næstu dögum. Geta þá íbúar kynnt sér á hvaða rýmingareitum hús þeirra eru. Jafnframt mun Almannavarnarnefnd Austurlands bjóða upp á kynningu fyrir íbúa sem hér segir:
Seyðisfjörður, – Herðubreið þriðjudaginn 3. desember kl. 17:00.
Stöðvarfjörður, – Grunnskólinn miðvikudaginn 4. desember kl. 16:00.
Fáskrúðsfjörður, – Grunnskólinn miðvikudaginn 4. desember kl. 18:00.
Eskifjörður, – Grunnskólinn fimmtudaginn 5. desember kl. 20:00.
Kynning á kortum fyrir Neskaupstað fór fram á fundi þar í lok október sl.
Mynd hér að ofan var tekin við undirritun kortanna á Veðurstofunni í dag. Með ráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, er Hildigunnur H.H. Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofunnar, Matthew J. Roberts, framkvæmdastjóri þjónustu- og rannsóknasviðs Veðurstofunnar, Tómas Jóhannesson, sérfræðingur í ofanflóðahættumati hjá Veðurstofu og Ragnar Heiðar Þrastarson, fagstjóri landupplýsingakerfa á Veðurstofunni. (Ljósmynd: Veðurstofa Íslands/Haukur Hauksson)