21 Nóvember 2024 11:55
Eldgos hófst á milli Stóra – Skógfells og Sýlingarfells kl. 23:14 í gærkvöldi. Fyrstu merki um kvikuhlaup sáust á mælum um kl. 22:30 í gærkvöldi. Ákveðið var að rýma Grindavík og Svartsengi kl. 22:57. Sú aðgerð viðbragðsaðila gekk vel. Dregið hefur úr virkni gossins. Hraunflæði er áfram til vesturs og norðurs. Gosið er hið sjöunda í röð eldgosa á Sundhnúksgígaröðinni frá því í desember á síðasta ári. Hraunrennslið hefur tekið Svartsengislínu út og fer heitavatnsframleiðsla fyrir Suðurnesin nú fram með varaaflsvélum í Svartsengi. Þá hefur rennandi hraun nú náð að Njarðvíkuræðinni, heitavatnslögninni frá Svartsengi til Fitja í Reykjanesbæ. Lögnin liggur í jörðu á þeim kafla þar sem hraun rennur og er talið að lögnin sé vel varin. Ef svo fer að hún rofnar er viðgerðaefni tiltækt og miðast allt viðbragð við að hraða viðgerð ef til þess kemur. Jarðvarmaverinu í Svartsengi er nú fjarstýrt frá Reykjanesvirkjun en starfsemi orkuveranna hefur verið að mestu með eðlilegum hætti eins og í fyrri eldgosum. Viðvörun barst úr borholuvöktunarkerfi HS Orku tæpum hálftíma áður en eldgosið hófst. Fylgst er vel með framvindu hraunrennslis og gasmengun á svæðinu. Íbúar eru beðnir að fylgjast vel með upplýsingum á vefsíðum og samfélagsmiðlum almannavarna og orku- flutnings- og veitufyrirtækjanna HS Orku, HS Veitna og Landsnets ef breytingar verða á stöðu innviða á Reykjanesi. Rafmagn fór af Grindavík í morgun en er nú komið aftur á.
Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum ákvað í gærkvöldi að fara á neyðarstig vegna eldgossins. Samhæfingarstöð Almannavarna var virkjuð á sama tíma. Tilkynning um breytingu á almannavarnastigi var birt á heimasíðu almannavarna kl. 23:29, sjá á slóðinni https://www.almannavarnir.is/frettir/eldgos-hafid-2
Viðbragðsaðilar, hópur vísindamanna og einstaklingar á vegum Blaðamannafélags Íslands, með vísan til samkomulags félagsins við lögreglustjórann á Suðurnesjum, er heimilt að fara inn fyrir lokunarpósta við Grindavíkurveg, Nesveg og Suðurstrandarveg. Vakin er athygli á því að inn á merkt vinnusvæði fara menn ekki nema með samþykki þeirra sem stjórna þar aðgerðum. Íbúar og starfsmenn fyrirtækja hafa sömu heimild. Á hættustundu/neyðarstigi almannavarna er lögreglustjóra heimilt að vísa á brott eða fjarlægja fólk af hættusvæði.
Þeir sem eiga erindi inn á hættusvæði er bent á að athuga reglulega með loftgæði á svæðinu inn á vefsíðu Umhverfisstofnunar, á slóðinni: https://loftgaedi.is/ Þar eru jafnframt góðar leiðbeiningar. Bent er á upplýsingar á vefsíðu Landlæknisembættisins, á slóðinni: https://island.is/eldgos-heilsa og vefsíðu Vinnueftirlitsins, á slóðinni: https://vinnueftirlitid.is/
Frekari upplýsingar:
- Íbúar og starfsmenn fyrirtækja dvelja inn á hættusvæði á eigin ábyrgð. Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi.
- Lögreglustjóri tekur skýrt fram að Grindavík er ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik. Lögreglustjóri mælir ekki með því að íbúar dvelji í bænum.
- Í Grindavík er talin vera töluverð hætta á jarðfalli ofan í sprungur.
- Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi sem felast m.a. í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun. Þá hafa sprungur verið girtar af.
- Opin svæði í og við Grindavík hafa ekki verið skoðuð sérstaklega. Fólk haldi sig við götur bæjarins og forðist að fara út á lóðir og önnur opin svæði.
- Grindavík er lokuð öllum öðrum en viðbragðsaðilum, íbúum bæjarins, starfsmönnum Grindavíkurbæjar, fyrirtækja, verktökum og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa. Fjölmiðlafólk hefur heimild til að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja.
- Gosstöðvarnar og hraunið sem runnið hefur er ekki aðgengilegt fyrir ferðamenn við núverandi aðstæður.
Á svæði sunnan Voga og Reykjanesbrautar hefur verið leitað að sprengjum í gegnum tíðina. Það svæði er talið mengað af virkum sem óvirkum sprengjum sem geta valdið manntjóni ef þær springa en hiti eða hreyfingar geta haft þar áhrif. Staðsetning innan 300 metra frá miðpunkti stórrar sprengju getur valdið manntjóni. Á svæðinu eru fallbyssukúlur, sprengjuvörpur (Mortar) og æfingasprengjur. Það er hins vegar aðeins fyrir sprengjusérfræðinga að meta ástand og gerð þessara sprengna. Þá liggja ekki fyrir nákvæmar upplýsingar um útbreiðslu né stærð þessa svæðis en Landhelgisgæsla Íslands hefur dregið upp neðangreint kort til upplýsingar. Inn á þessu svæði þurfa viðbragðsaðilar sem aðrir að halda sig við merkta gönguslóða. Vakin er athygli á þessari hættu með skiltum sem staðið hafa við upphaf gönguleiða í áratugi. Það þekkja heimamenn og útivistamenn sem gengið hafa um svæðið. Nauðsynlegt er að vekja athygli á þessum staðreyndum nú þegar erlendir ferðamenn streyma inn á Reykjanesið til að berja gosið augum. Það eru tilmæli lögreglustjóra til ferðaþjónustuaðila og þeirra sem veita erlendum ferðamönnum upplýsingar að koma þessum staðreyndum á framfæri við ferðamenn. Ferðamenn haldi sig við merktar gönguleiðir og slóða. Gosstöðvarnar eru ekki aðgengilegar fyrir ferðamenn við núverandi aðstæður. Þá gætir mengunar frá gosi og gróðureldum. Loftgæði nær gosstöðvum eru slæm. Skipulögð bílastæði eru ekki fyrir hendi né útsýnisaðstaða. Ökumenn leggi ekki bílum á og við Reykjanesbraut.
Lokað er í Bláa lónið og Northern Light Inn. Á starfssvæði Bláa Lónsins er nú þéttriðið net gasmæla. Þá er veðurstöð staðsett á einni bygginu Bláa Lónsins. Eftirlit og viðbagð við hugsanlegri gasmengun er nú með allt öðrum hætti en áður hefur verið á starfssvæði Bláa Lónsins. Fulltrúar fyrirtækjanna sitja fundi aðgerðarstjórnar og vettvangsstjórnar. Fylgjast þarf með opnunartímum á heimasíðum fyrirtækjanna. Þar getur þurft að rýma með skömmum fyrirvara en fyrirtækin starfa inn á skilgreindu hættusvæði Veðurstofu Íslands. Á svæðinu er talin vera nokkur hætta á gasmengun. Umferð til og frá Bláa Lóninu og Northern Light Inn er sem fyrr um Reykjanesbraut og Grindavíkurveg.
Eldgos er í gangi og aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara. Þá geta hættur leynst utan merktra svæða.
Lokunarpóstar eru við Grindavíkurveg, Nesveg og Suðurstrandarveg. Flóttaleiðir eru um Nesveg og Suðurstrandarveg.
Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settar upp þrjár viðvörunarflautur í Grindavík. Þá er ein slík við Bláa lónið og önnur við HS orku í Svartsengi. Þær hafa verið notaðar með góðum árangri.
Fáir Grindvíkingar kjósa að dvelja í bænum næturlangt. Lögreglustjóri mælir alls ekki með því og getur ekki ábyrgst öryggi þeirra við núverandi aðstæður.
Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla og slökkvilið sinna lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur. Þá er sjúkrabíll staðsettur í Grindavík alla daga á dagtíma.
Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/ þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is og heimasíðu almannavarna á slóðinni www.almannavarnir.is
Með vísan til 23. gr. laga um almannavarnir nr. 88/2008 eru takmarkanir ekki aðrar en að framan greinir.
Framangreint fyrirkomulag gildir til 22. nóvember 2024 að öllu óbreyttu.