5 Nóvember 2024 15:01

Brot 73 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í vesturátt, að Salavegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 274 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 83.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.