4 Nóvember 2024 14:12

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra voru  með mikinn viðbúnað í Sólheimum í Reykjavík í hádeginu eftir að tilkynning barst um konu þar í miklu ójafnvægi fyrir utan hús við götuna. Konan var með lítið barn meðferðis og óttast var að hún myndi vinna því og sjálfri sér skaða, en konan var með hníf í hendinni. Fjöldi viðbragðsaðila var kallaður á vettvang, m.a. samningamenn frá embætti ríkislögreglustjóra, en eftir töluverðar samningaviðræður tókst loks að yfirbuga konuna, en hvorki hana né barnið sakaði í aðgerðum lögreglunnar. Í framhaldinu var konunni komið undir læknishendur og barninu í umsjá barnaverndaryfirvalda. Lokað var fyrir umferð um Sólheima á meðan aðgerðum lögreglunnar stóð, en lokunum var aflétt um eittleytið.