27 Október 2024 11:13

Dagana 28. – 31. október verður þing Norðurlandaráðs 2024 haldið í Reykjavík. Þingið fer fram á Alþingi og í Ráðhúsi Reykjavíkur undir yfirskriftinni „Friður og öryggi á norðurslóðum“. Von er á rúmlega 600 gestum.

Íslenska ríkið hefur ákveðnum skuldbindingum að gegna þegar tekið er á móti þjóðarleiðtogum erlendra ríkja. Öryggi þjóðarleiðtoga erlendra ríkja sem hingað koma er á ábyrgð íslenska ríkisins.

Götulokanir verða í miðborg Reykjavíkur og mikil öryggisgæsla í og við lokaða svæðið á meðan þingið stendur yfir. Lögregla mun sinna öryggisgæslu og verða þeir lögreglumenn sem koma að henni vopnaðir við störf sín.

Búast má við umferðartöfum á morgun, þá sér í lagi síðdegis. 

Í miðborg Reykjavíkur verður Vonarstræti lokað milli Lækjargötu og Suðurgötu. Templarasund og Kirkjustræti frá Pósthússtræti verður einnig lokað, auk þess sem Tjarnargötu á milli Vonarstrætis og Kirkjustrætis verður lokað.

Bílastæðahúsi við Ráðhús Reykjavíkur verður lokað fyrir allri umferð en Tjarnargata frá Skothúsvegi verður opin að Tjarnargötu 14, þar sem tvístefnuakstur verður um opna hlutann á Tjarnargötu.

Bílastæðahúsinu verður lokað á morgun, mánudaginn 28. október kl. 8:00 og götulokanir taka gildi á sama tíma. Lokunum verður aflétt á miðvikudeginum 30. október kl. 16:00.

Þá verður Ráðhús Reykjavíkur lokað almenningi frá laugardeginum 26. október til og með fimmtudeginum 31. október.

Takmarkanir á umferð um Þingvelli á morgun, mánudag:

Vegna fundar forsætisráðherra Norðurlandanna verða verulegar takmarkanir á umferð ökutækja og hjólandi vegfarenda um Þingvelli á morgun, mánudaginn 28. október. Þá verður öll umferð gangandi vegfarenda bönnuð.

Fundurinn er haldinn í tengslum við Norðurlandaráðsþing.

Það verður heimilt að aka til austurs um Þingvallaveg en lokað verður fyrir umferð til vesturs frá gatnamótum Þingvallavegar/Lyngdalsheiðar að gatnamótum Þingvallavegar/Grafningsvegar.
Allri umferð til vesturs um Lyngdalsheiði frá Laugarvatni verður beint til suðurs við áðurnefnd gatnamót og niður á Biskupstungnabraut

Þjónustumiðstöð á Leirum verður opin en Vallavegur frá þjónustumiðstöð verður lokaður. Öll umferð um Þinghelgi verður óheimil, auk þess sem aðkoma að Haki og Silfru verða lokuð.

Lokanir á umferð við Þingvelli taka gildi kl. 07:00 á morgun, mánudaginn 28. október og gilda til miðnættis.

 

Svör við ýmsum spurningum um verkefni lögreglu í tengslum við þingið, götulokanir og aðrar takmarkanir má finna hér: Norðurlandaráðsþing í Reykjavík | Ísland.is