19 Október 2024 12:20
Meta hefur tilkynnt um nýjar aðgerðir á Instagram sem miða að því að vernda ungmenni gegn kynlífskúgun (e. sextortion) og hótunum um dreifingu kynferðislegra mynda. Þessar aðgerðir eru sérstaklega mikilvægar í ljósi þess að Instagram er meðal vinsælustu samfélagsmiðla barna og ungmenna á Íslandi þar sem um 11% stráka og 12% stúlkna í 4.-7. bekk, og 63% stráka og 80% stúlkna í 8.-10. bekk, og 81% stráka og 97% stúlkna nota Instagram.*
Helstu aðgerðirnar á Instagram til að bregðast við kynlífskúgun eru:
- Nektarmyndir verða sjálfkrafa gerðar óskýrar í einkaskilaboðum til að verja viðtakendur.
- Unglingar undir 16 ára aldri geta ekki breytt stillingu reikningsins úr einkaham í opinn án samþykkis forráðamanna.
- Aukin fræðsla og forvarnir verða í samstarfi við áhrifavalda á Instagram.
- Ráðgjöf verður aðgengileg fyrir notendur sem verða fyrir kynlífskúgun og foreldra unglinga.
- Breytingar á tengi og deilimöguleikum á notendareikningum til þess að trufla notkunarmynstur skipulagðra glæpasamtaka á borð við yahoo boys.
Þessar aðgerðir koma í kjölfar breytinga á notkunarskilmálum fyrir unglingsnotendur sem Meta kynnti í september. Meðal þeirra breytinga eru að reikningar notenda undir 18 ára aldri eru sjálfkrafa stilltir á einkaham, engar tilkynningar eru sendar á milli klukkan 22 og 7 á nóttunni til að trufla ekki svefn barna, og foreldrar geta séð hvaða reikninga börnin hafa haft samskipti við nýlega.
Ábendingar fyrir foreldra
Foreldrar þurfa að tryggja öryggi barna sinna á samfélagsmiðlum, sérstaklega í ljósi þessara nýju breytinga. Hér eru nokkur mikilvæg ráð:
- Virkja öryggisstillingar: Gakktu úr skugga um að reikningar barna séu rétt stilltir á einkaham og að nýjustu breytingar frá Meta séu virkar.
- Rétt skráning: Tryggðu að börn séu rétt skráð með rétta fæðingardagsetningu svo breytingarnar nái til þeirra.
- Samræður um netöryggi: Ræddu við börnin um ábyrgð á netinu og hættuna á kynlífskúgun. Ef börnin lenda í slíkum aðstæðum, vísaðu þeim á ráðleggingar frá 112.
- Skjátími: Nýjustu breytingar takmarka tilkynningar á Instagram á nóttunni. Hvetjið börnin til að takmarka skjátíma, sérstaklega á kvöldin.
Á vefsíðu 112 er að finna stöðluð viðbrögð sem unglingar geta notað ef þau eru beðin um nektarmynd.
Hefur þú orðið fyrir kynferðisofbeldi?
- Hafðu samband við 112 hvenær sem er til að fá aðstoð ef þér hefur verið nauðgað, beitt öðru kynferðisofbeldi eða grunar að slíkt hafi skeð.
- Leitaðu til neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis ef brotið er nýafstaðið.
- Einnig er hægt að fara á heilsugæsluna eða til þjónustumiðstöðva fyrir þolendur ofbeldis: Bjarkarhlíð í Reykjavík, Bjarmahlíð á Akureyri, Sigurhæðir á Selfossi og Suðurhlíð í Reykjanesbæ.
———-
Nánari upplýsingar veitir María Rún Bjarnadóttir, sviðsstjóri nýsköpunar og stefnumótunar hjá embætti ríkislögreglustjóra, mrb@logreglan.is
*Leiðrétt kl. 15.38 19.10.2024. Upprunalega frétt leiðrétt varðandi notkun barna á samfélagsmiðlum. Tölurnar núna snúa að notkun allra barna á Instagram. Sjá nánar í könnun Fjölmiðlanefndar.