24 September 2010 12:00
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Hafnarfirði í dag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 30 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Á sama stað var einnig lagt hald á ýmsan búnað sem tengist starfsemi sem þessari. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, játaði aðild sína að málinu.
Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.