17 Október 2024 13:26

Suðurhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Suðurnesjum opnar í dag. Miðstöðin er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Suðurnesjum, Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS), lögreglustjórans á Suðurnesjum, Kvennaráðgjafarinnar, Mannréttindaskrifstofu Íslands og WOMEN á Íslandi.

Suðurhlíð er afurð verkefnisins Öruggari Suðurnes sem varð formlega til í nóvember 2023 þegar eftirtaldir aðilar undirrituðu samstarfsyfirlýsingu um  svæðisbundið samráð um aðgerðir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á svæðinu; Grindavíkurbær, Reykjanesbær, Suðurnesjabær, Sveitarfélagið Vogar, Fjölbrautaskóli Suðurnesja (FS), HSS, Heilsugæslan Höfða, Keilir, lögreglustjórinn á Suðurnesjum,  Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, og sýslumaðurinn á Suðurnesjum.

Áður en samstarfsyfirlýsingin var undirrituð varð ljóst að fyrsta verkefni samráðsvettvangsins yrði að opna miðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Suðurnesjum. Fyrir lá styrkur til starfseminnar frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Í ársbyrjun 2024 var skipaður undirbúningshópur sem í sátu fulltrúar þeirra aðila sem stefndu að opnun miðstöðvarinnar.

Suðurhlíð er fjórða miðstöðin fyrir þolendur ofbeldis hér á landi. Fyrir eru starfandi Bjarkarhlíðí Reykjavík, Bjarmahlíð á Akureyri og Sigurhæðir á Suðurlandi. Allar miðstöðvarnar vinna starfa út frá hugmyndafræði „Family Justice Center“ sem leggur áherslu á að veita fullorðnum þolendum ofbeldis þverfaglega þjónustu á einum stað, þeim að kostnaðarlausu og með þeirra þarfir í fyrirrúmi.

Miðstöðin er til húsa að Aðalgötu 60 í Reykjanesbæ og deilir þar húsnæði með Heilsugæslunni Höfða og annarri heilsutengdri starfsemi.  Teymisstjóri Suðurhlíðar er Inga Dóra Jónsdóttir félagsráðgjafi. Þeir sem vilja kynna sér þjónustuna frekar eða bóka viðtal við teymisstjóra geta fengið allar upplýsingar á vefsíðunni sudurhlid.is.

Hafa skal samband við 112 í neyð.

Sjá nánar um samfélagslöggæslu og svæðisbundið samráð um afbrotavarnir.