26 September 2024 13:24

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Grundarhverfi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 153 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 86 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 93.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.