20 September 2024 08:23

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum ákvað þann 6. september 2024 að færa almannavarnastig af hættustigi á óvissustig þar sem eldgosinu norðan við Stóra – Skógfell er lokið.     Gosið sem hófst að kvöldi fimmtudagsins 22. ágúst 2024 er stærsta eldgosið frá því í desember 2023.   Það stóð yfir í um 14 daga.  Þá er kvikusöfnun hafin að nýju undir Svartsengi á svipuðum hraða og áður.  Veðurstofan gaf út nýtt hættumat kl. 15 í gær sem gildir að öllu óbreyttu til 3. október 2024, sjá viðhengi.  Viðbúið er að sama atburðarás endurtaki sig á svæðinu.   Hraunbreiðan er enn mjög heit og hætta af völdum hennar því talin mikil á þeim svæðum þar sem hraun rann í síðasta gosi og gasmengun töluverð frá hraunbreiðunni. Hætta af völdum gjósku er nú alls staðar á lægsta stigi.

Athygli ferðamanna er vakin á viðvörunarskiltum við helstu útsýnisstaði þar sem svæðinu er lýst sem hættulegu.  Á svæði sunnan Voga og Reykjanesbrautar hefur verið leitað að sprengjum í gegnum tíðina.  Það svæði er talið mengað af virkum sem óvirkum sprengjum sem geta valdið manntjóni ef þær springa en hiti eða hreyfingar geta haft þar áhrif.  Staðsetning innan 300 metra frá miðpunkti stórrar sprengju getur valdið  manntjóni.   Á svæðinu eru fallbyssukúlur, sprengjuvörpur (Mortar) og æfingasprengjur.   Hér að neðan má sjá sprengjur sem fundist hafa á svæðinu.  Það er hins vegar aðeins fyrir  sprengjusérfræðinga að meta ástand og gerð þessara sprengna.  Þá liggja ekki fyrir nákvæmar upplýsingar um útbreiðslu né stærð þessa svæðis en Landhelgisgæsla Íslands hefur dregið upp neðangreint kort til upplýsingar.   Inn á þessu svæði þurfa viðbragðsaðilar sem aðrir að halda sig við merkta gönguslóða.   Vakin er athygli á þessari hættu með skiltum sem staðið hafa við upphaf gönguleiða í áratugi.  Það þekkja heimamenn og útivistarmenn sem gengið hafa um svæðið.   Nauðsynlegt er að vekja athygli á þessum staðreyndum.  Það eru tilmæli lögreglustjóra til ferðaþjónustuaðila og þeirra sem veita erlendum ferðamönnum upplýsingar að koma þessum upplýsingum á framfæri við ferðamenn.   Ferðamenn haldi sig við merktar gönguleiðir og slóða.  Gosstöðvarnar eru ekki aðgengilegar fyrir ferðamenn við núverandi aðstæður.   Skipulögð bílastæði eru ekki fyrir hendi né útsýnisaðstaða.   Ökumenn leggi ekki bílum á og við Reykjanesbraut/Grindavíkurveg.

Opið er í Bláa lónið og Northern Light Inn.    Á starfssvæði Bláa Lónsins er nú þéttriðið net gasmæla.  Þá er veðurstöð staðsett á einni bygginu Bláa Lónsins.  Eftirlit og viðbagð við hugsanlegri gasmengun er nú með allt öðrum hætti en áður hefur verið á starfssvæði Bláa Lónsins.   Fulltrúar fyrirtækjanna sitja fundi aðgerðarstjórnar og vettvangsstjórnar.    Fylgjast þarf með opnunartímum á heimasíðum fyrirtækjanna.  Þar getur þurft að rýma með skömmum fyrirvara en fyrirtækin starfa inn á skilgreindu hættusvæði Veðurstofu Íslands.    Umferð til og frá Bláa Lóninu og Northern Light Inn er sem fyrr um Reykjanesbraut og Grindavíkurveg.   Hættur á svæðinu eru taldar litlar eða mjög litlar við núverandi aðstæður.

Viðbragðsaðilar, hópur vísindamanna og einstaklingar á vegum Blaðamannafélags Íslands, með vísan til samkomulags félagsins við lögreglustjórann á Suðurnesjum, er heimilt að fara inn fyrir lokunarpósta við Nesveg, Bláalónsveg og Suðurstrandarveg.  Vakin er athygli á því að inn á merkt vinnusvæði fara menn ekki nema með samþykki þeirra sem stjórna þar aðgerðum.  Á hættustundu er lögreglustjóra heimilt að vísa á brott eða fjarlægja fólk af hættusvæði.

Þeir sem eiga erindi inn á hættusvæði er bent á að athuga reglulega með loftgæði á svæðinu inn á vefsíðu Umhverfisstofnunar, á slóðinni:  https://loftgaedi.is/   Þar eru jafnframt góðar leiðbeiningar. Bent er á upplýsingar á vefsíðu Landlæknisembættisins, á slóðinni:  https://island.is/eldgos-heilsa  og vefsíðu Vinnueftirlitsins, á slóðinni:  https://vinnueftirlitid.is/

Frekari upplýsingar:

 

  • Íbúar, starfsmenn og gestir dvelja inn á hættusvæði á eigin ábyrgð.   Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi.
  • Lögreglustjóri tekur fram að Grindavík er ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik.   Lögreglustjóri mælir ekki með því að íbúar dvelji í bænum á meðan unnið er að því að gera bæinn öruggari en hann er í dag.
  • Í Grindavík er talin vera nokkur hætta á jarðfalli ofan í sprungur.
  • Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi sem felast m.a. í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun.  Þá hafa sprungur verið girtar af.
  • Opin svæði í og við Grindavík hafa ekki verið skoðuð sérstaklega.  Fólk haldi sig við götur bæjarins og forðist að fara út á lóðir og önnur opin svæði.
  • Grindavík er lokuð öllum öðrum en viðbragðsaðilum, íbúum bæjarins, starfsmönnum Grindavíkurbæjar, fyrirtækja, verktökum og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa.  Fjölmiðlafólk hefur heimild til að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja.
  • Gosstöðvarnar og hraunið sem runnið hefur er ekki aðgengilegt fyrir ferðamenn við núverandi aðstæður.  Ferðamenn inn á hættusvæði eru þar á eigin ábyrgð.

Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ fer með stjórn, skipulag og framkvæmd verkefna sem hér segir:

  1. Starfrækslu þjónustuteyma sem samþætta þjónustu fyrir íbúa Grindavíkurbæjar, m.a. þegar kemur að skóla- og frístundastarfi, félagsþjónustu, barnaverndarþjónustu, þjónustu við eldra fólk, fatlað fólk og aðra viðkvæma hópa og stuðningi á sviði húsnæðis- og vinnumarkaðsmála. Verkefni þjónustuteyma eru m.a. að vinna tillögur og áætlanir um stuðning við íbúana og eiga samráð við móttökusveitarfélög, stjórnvöld og aðra aðila um þjónustu við þá.
  2. Töku ákvarðana um rekstur þjónustumiðstöðvar fyrir íbúa Grindavíkurbæjar og starfrækslu hennar eftir atvikum.
  3. Gerð áhættumats fyrir þéttbýli í Grindavíkurbæ í samvinnu við ríkislögreglustjóra.
  4. Yfirumsjón með framkvæmd nauðsynlegra viðgerða til að tryggja virkni, rekstur og afhendingaröryggi innviða, eftir því sem við á og fellur undir ábyrgðarsvið Grindavíkurbæjar.
  5. Könnun á jarðvegi.
  6. Yfirumsjón með framkvæmd nauðsynlegra viðgerða á götum, stígum og opnum svæðum sem Grindavíkurbær er ábyrgur fyrir.
  7. Yfirumsjón með vernd lausafjármuna í Grindavíkurbæ eftir því sem við á, að mati framkvæmdanefndarinnar.
  8. Framkvæmd aðgangsstýringar í Grindavíkurbæ í samvinnu við lögreglu.
  9. Upplýsingamiðlun til íbúa Grindavíkurbæjar og hagaðila um stöðu mála og framgang verkefna sem nefndin sinnir.

Enn eru hættur á svæðinu og aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara.  Þá geta hættur leynst utan merktra svæða.

Lokunarpóstar eru við Grindavíkurveg, Bláalónsveg, Nesveg og Suðurstrandarveg.   Flóttaleiðir frá Grindavík eru um Suðurstrandarveg, Nesveg, Bláalónsveg og eftir atvikum um Grindavíkurveg.  Flóttaleiðir frá Bláa Lóninu eru um Bláalónsveg og  Grindavíkurveg.  Arfadalsvíkurvegur er lokaður einbreiður malarvegur sem getur nýst ef til rýmingar kemur.

Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settar upp þrjár viðvörunarflautur í Grindavík.  Þá er ein slík við Bláa lónið og önnur við HS orku í Svartsengi.  Þær hafa verið notaðar með góðum árangri.

Fáir Grindvíkingar kjósa að dvelja í bænum næturlangt.    Lögreglustjóri getur ekki ábyrgst öryggi þeirra við núverandi aðstæður.  Íbúar og þeir sem eiga erindi til Grindavíkur og vilja aka Grindavíkurveg þurfa að aka inn á Bláalónsveg að Nesvegi til Grindavíkur.

Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla og slökkvilið sinna lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.  Þá er sjúkrabíll staðsettur í Grindavík alla daga á dagtíma.

Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/   þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is og heimasíðu almannavarna á slóðinni  www.almannavarnir.is

Með vísan til 23. gr. laga um almannavarnir nr. 88/2008 eru takmarkanir ekki aðrar en að framan greinir.

Framangreint fyrirkomulag gildir til 26. september 2024 að öllu óbreyttu.