7 September 2024 08:53
Lögreglan var með sýnilega löggæslu  við hátíðarsvæðið á meðan formleg dagskrá var í gangi. Talsverður fjöldi fólks var á skemmtistöðum bæjarins og þónokkur ölvun í gangi frameftir nóttu.

Tilkynnt var um þrjár líkamsárásir og einn var tekinn fyrir ölvun við akstur. Lögreglan hafði afskipti af tveimur ungmennum sem voru ölvuð og undir aldri.