23 Ágúst 2024 09:22
Brot 26 ökumanna voru mynduð í Arnarbakka í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarbakka í vesturátt, við Dvergabakka. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 90 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.
Vöktun lögreglunnar í Arnarbakka er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.