3 Júlí 2024 09:21

Í kvöld er stefnt á að fræsa og malbika hægri akrein Kringlumýrarbrautar í Reykjavík í suðurátt, á milli Bústaðavegar og Kársnesbrautar í Kópavogi. Kaflinn er um 610 m að lengd og verður þrengt í eina akrein meðfram framkvæmdasvæðinu og hámarkshraði lækkaður. Áætlaður framkvæmdatími er frá kl. 19 til 2 í nótt. Í kvöld er líka stefnt á að fræsa og malbika vinstri akrein Hafnarfjarðarvegar í Kópavogi í suðurátt, á milli Kársnesbrautar og Kópavogsbrautar. Kaflinn er um 740 m að lengd og verður honum lokað, en hjáleið verður um Kópavogsháls. Áætlaður framkvæmdatími er frá kl. 21 til 6 í nótt.

Ökumenn eru beðnir um að aka varlega, sýna tillitssemi og virða merkingar.