28 Júní 2024 14:38

Um þessar mundir eru liðin 50 ár frá því að mátti sjá fyrstu einkennisklæddu lögreglukonurnar að störfum á Íslandi, en það var 30. júní 1974. Þetta voru Dóra Hlín Ingólfsdóttir og Katrín Þorkelsdóttir. Dóra Hlín, sem nú er látin, starfaði í lögreglunni um áratugskeið og Katrín í allnokkur ár. Þær voru hluti af svokallaðri kvenlögregludeild hjá lögreglunni í Reykjavík, en deildin var sameinuð almennri löggæslu þess embættis 11. maí 1976.

Tímamótanna var minnst með veglegu hófi í félagsheimili Lögreglufélags Reykjavíkur í byrjun mánaðarins líkt og fjallað hefur verið um. Á meðfylgjandi myndum eru þær stöllur  Katrín, t.v., og Dóra Hlín, en starf þeirra var enginn dans á rósum og ýmislegt sem þurfti að yfirstíga.