28 Júní 2024 10:39

Brot 121 ökumanns var myndað á Bústaðavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bústaðaveg í norðurátt að Hringbraut, á móts við Friðrikskapellu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 585 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 88.

Vöktun lögreglunnar á Bústaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og sól var á meðan hraðamælingunni stóð.