25 Júní 2024 08:56

Brot 169 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 20. júní til mánudagsins 24. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tæplega fjórum sólarhringum fóru 20.225 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 98. Þremur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.