18 Júní 2024 09:23

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Elliðavatnsvegi (Flóttamannaleið) í Garðabæ á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Elliðavatnsveg í austurátt, sunnan Kinnargötu við Odd golfvöll. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 114 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 50 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar á Elliðavatnsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.