13 Júní 2024 11:09

Brot 49 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Grundarhverfi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 343 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 104.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.