10 Júní 2024 09:51

Í kvöld er stefnt á að fræsa og malbika vinstri akrein til austurs á Reykjanesbraut í Hafnarfirði, á milli gatnamóta við Fjarðarhraun og Kauptún í Garðabæ. Kaflinn er um 310 m að lengd og verður akreininni lokað og hámarkshraði lækkaður framhjá vinnusvæðinu meðan á þessu stendur. Áætlaður framkvæmdatími er frá kl. 19 til 1 í nótt.

Í kvöld er einnig stefnt á að fræsa og malbika Fjarðarhraun í Hafnarfirði. Fjarðarhraun verður lokað til suðurs frá Hafnarfjarðarvegi ásamt beygjuakrein inn á Hafnarfjarðarveg. Hafnarfjarðarvegur verður þrengdur í eina akrein framhjá vinnusvæðinu. Áætlaður framkvæmdatími er frá kl. 20 til 4 í nótt.

Vegfarendur eru beðnir um að aka varlega, sýna tillitssemi og virða merkingar.