4 Júní 2024 08:58

Brot 43 ökumanna voru mynduð á Flatahrauni í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Flatahraun í vesturátt, á móts við Flatahraun 29. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 352 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 68.

Vöktun lögreglunnar á Flatahrauni er liður í umferðareftirliti hennar  á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.