23 Maí 2024 09:42

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Réttarholtsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Réttarholtsveg í norðurátt, að Langagerði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 84 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 46.

Vöktun lögreglunnar á Réttarholtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.