17 Maí 2024 16:04

Lögreglan á Suðurnesjum lagði fram í dag kröfu um farbann tveggja karlmanna úr áhöfn flutningaskips vegna rannsóknar sjóslyss. Til að tryggja rannsóknarhagsmuni höfðu þeir verið handteknir í Vestmannaeyjum við komu skipsins þangað í gærdag. Fyrstu skýrslutökur fóru þar fram að beiðni embættisins. Í gærkvöldi voru karlmennirnir svo fluttir til Suðurnesja, þar sem þeir voru vistaðir þar til unnt var að færa þá fyrir Héraðsdóm Suðurnesja. Um hádegisbil í dag var svo lögð fram krafa þess efnis að þeir yrðu úrskurðaðir í farbann á meðan frekari rannsókn fer fram. Rannsókn lögreglu miðar ágætlega, en gagnaöflun og skýrslutökur standa enn yfir. Ummerki eru eftir ákomu á báðum sjóförunum sem þykir styrkja mjög grun lögreglu um árekstur sem orsök þess að bátnum hvolfdi. Rannsókn lögreglu miðar m.a. að því að upplýsa með hvaða hætti það atvikaðist.  Héraðsdómur Suðurnesja hefur fallist á kröfu Lögreglustjórans og hafa mennirnir verið úrskurðaðir í 4 vikna farbann. Annar þeirra hefur þegar kært úrskurðinn til Landsréttar.