17 Maí 2024 10:31

Brot 65 ökumanna voru mynduð á Laugarásvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Laugarásveg í austurátt, við Áskirkju. Á einni klukkstund, eftir hádegi, fór 171 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65.

Vöktun lögreglunnar á Laugarásvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.