15 Maí 2024 16:06

Brot 31 ökumanns var  myndað á Gagnvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gagnveg í vesturátt, að Garðhúsum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 64 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 48%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Gagnvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.