15 Maí 2024 09:18

Göngin um Hvalfjörð verða lokuð í kvöld, miðvikudaginn 15. maí, frá kl. 21 – 23 vegna umfangsmikillar brunaæfingar á vegum Vegagerðarinnar, Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.  

Hjáleið verður um Hvalfjörð meðan á æfingunni stendur. Lokanir verða við gatnamót Hringvegar og Hvalfjarðarvegar í Leirársveit og við gatnamót Vesturlandsvegar og Hvalfjarðarvegar á Kjalarnesi.  

Vegfarendur eru beðnir um að taka tillit til þessa í ferðaáætlunum sínum. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem lokunin kann að valda.