8 Maí 2024 08:03

Brot 41 ökumanns var myndað í Urriðaholtsstræti í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Urriðaholtsstræti í austurátt, að Brekkugötu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 95 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 43%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65.

Vöktun lögreglunnar í Urriðaholtsstræti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.