3 Maí 2024 09:26

Brot 3 ökumanna voru mynduð á Hverfisgötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hverfisgötu í austurátt, að Vatnsstíg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 168 ökutæki þessa akstursleið og því óku sárafáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 46.

Vöktun lögreglunnar á Hverfisgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.