27 Febrúar 2024 14:49
Brot 31 ökumanns var myndað á Tunguvegi í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Tunguveg í norðurátt, að Kvíslartungu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 86 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 78.
Vöktun lögreglunnar á Tunguvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.