21 Febrúar 2024 16:05

Brot 94 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í vesturátt, að Sólarsölum. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 292 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 79.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.