22 Febrúar 2024 16:03

Brot 43 ökumanna voru mynduð á Suðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd í vesturátt, á móts við Íþróttamiðstöðina. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 93 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 46%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar á Suðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.