1 Febrúar 2024 12:10

Brot 6 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í norðurátt, við Hamraborg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.382 ökutæki þessa akstursleið og því óku sárafáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 91 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 93.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.