31 Janúar 2024 14:11

Brot 9 ökumanna voru mynduð í Dugguvogi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dugguvog í austurátt, að Kuggavogi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 155 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 44.

Vöktun lögreglunnar í Dugguvogi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.