24 Janúar 2024 17:00
Við viljum beina því til skotvopnaeigenda að öll umsýsla með skotvopn er í dag í gegnum rafræna gátt á https://island.is/skotvopnaleyfi. Þar geta skotvopnaeigendur sótt um heimild til að kaupa skotvopn, tilkynnt um sölu skotvopns eða lán, sem og endurnýjað skotvopnaleyfi sitt, svo fátt eitt sé nefnt.
Þá viljum við einnig benda á að einstaklingar geta nálgast allar upplýsingar um eigin stöðu og skotvopnaeign á „Mínar síður“ á island.is. Þar er hægt að finna flipann „Skírteini“ og þá ætti skotvopnaleyfið að birtast. Þar sést hvaða réttindaflokka viðkomandi er með, gildistími leyfisins ásamt þeim skotvopnum sem viðkomandi hefur yfir að ráða. Viljum við hvetja skotvopnaeigendur til að fara yfir þessar upplýsingar og staðfesta að þær séu réttar, s.s. eintaksnúmer skotvopna. Þá er einnig afar mikilvægt að tryggja að skotvopnaleyfið sé í gildi, en án þess mega menn hvorki nota skotvopn né varsla þau.
Lögregla viðhefur eftirlit með skotvopnaeigendum og geta menn átt von á heimsókn okkar án fyrirvara – á kristilegum tíma þó! Í 37. gr vopnalaga segir að lögregla skuli gera upptæk til ríkissjóðs skotvopn sem finnast „í vörslu manns án heimildar“. Þetta er óneitanlega strangt og íþyngjandi ákvæði, en engu að síður skylda okkar samkvæmt orðanna hljóðan. Okkur er engin gleði í því að gera upptæk skotvopn hjá þeim sem hafa gerst sekir um þessháttar gleymsku og viljum því hvetja leyfishafa til að fylgjast grannt með þessum málum hjá sér. Ef leyfi er útrunnið er hægt að lána vopn til þess sem hefur til þess leyfi og getur viðkomandi þá varslað vopnin meðan leyfið er endurnýjað.
Þeir sem eiga lögheimili innan höfuðborgarsvæðisins geta sett sig í samband við leyfaþjónustu LRH, netfangið leyfi@lrh.is, til að koma með athugasemdir eða fyrirspurnir varðandi sín mál. Þeir sem búa utan okkar svæðis verða að setja sig í samband við viðkomandi embætti til að fá úrlausn sinna mála.