5 Janúar 2024 15:15

Brot 38 ökumanna voru mynduð í Álfheimum í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfheima í norðurátt, á móts við Álfheima 19. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 192 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar í Álfheimum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.