28 Desember 2023 20:45

Tveir karlar voru í kvöld í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald, eða til fimmtudagsins 4. janúar, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á skotárás í Hafnarfirði á aðfangadagskvöld. Þeir voru báðir handteknir síðastliðna nótt, en þriðji maðurinn, sem var handtekinn í gær og greint var frá í fyrri tilkynningu lögreglu, er laus úr haldi, en ekki var krafist gæsluvarðhalds yfir honum.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.