21 Desember 2023 09:45

Brot 112 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Straum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 544 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna,  eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 96.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.