20 Desember 2023 11:10

Brot 16 ökumanna voru mynduð í Baugshlíð í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Baugshlíð í suðurátt, við Lágafellsskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 127 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar í Baugshlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.