24 Nóvember 2023 10:09

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Vínlandsleið í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vínlandsleið í norðurátt, á móts við Vínlandsleið 2-4. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 178 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67.

Vöktun lögreglunnar á Vínlandsleið er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að sól, blautt og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.