22 Nóvember 2023 16:22

Brot 3 ökumanna voru mynduð í Stóragerði í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stóragerði í suðurátt, að Smáragerði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 31 ökutæki þessa akstursleið og því óku tiltölulega fáir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 44.

Vöktun lögreglunnar í Stóragerði er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.