22 Nóvember 2023 11:09

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Fjallkonuvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjallkonuveg í vesturátt, að Fannafold. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 168 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 63.

Vöktun lögreglunnar á Fjallkonuvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.