21 Nóvember 2023 11:37

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Ásbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásbraut í norðurátt, að Hvammabraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 281 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 83.

Vöktun lögreglunnar á Ásbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.