10 Nóvember 2023 11:41

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í austurátt, á móts við Mosskóga. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 158 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 81 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 84.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.