8 Nóvember 2023 10:09

Brot 131 ökumanns var myndað á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Skálatún. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 729 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 104.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.