3 Nóvember 2023 20:20
Sex voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á skotárás í Úlfarsárdal í Reykjavík aðfaranótt fimmtudags. Einn til viðbótar var handtekinn í tengslum við málið, en ekki var krafist gæsluvarðhalds yfir honum og er sá laus úr haldi lögreglu.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.