11 Október 2023 09:34

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Réttarholtsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Réttarholtsveg í norðurátt, að Langagerði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 94 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Réttarholtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.