2 Október 2023 14:40

Þegar grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu hefja göngu sína á nýjan leik eftir sumarleyfi er lögreglan þar jafnan við  umferðareftirlit og svo var einnig þetta árið. T.a.m. mældi sérstakur myndavélabíll embættisins hraða ökutækja við á fjórða tug grunnskóla, eða í næsta nágrenni þeirra (gönguleiðir skólabarna) víða í umdæminu í bæði ágúst og september.

Við þessar hraðamælingar voru um 750 ökumenn staðnir að hraðakstri í og við grunnskólana og voru hinir sömu sektaðir fyrir vikið. Í grófasta tilvikinu var um ræða bifreið, sem var ekið á 84 km hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 30. Ökumaður hennar á yfir höfði sér ákæru vegna brotsins.

Lögreglan minnir ökumenn, enn og aftur, á að aka varlega, ekki síst í námunda við skóla enda margir þar á ferli, m.a. nýir vegfarendur sem hófu skólagöngu í sumarlok.