26 September 2023 09:56

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Gullteig í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullteig í suðurátt, að Kirkjuteig. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 56 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 45.

Vöktun lögreglunnar á Gullteig er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.